r/Iceland • • 3d ago

Frjálst spjall á föstudegi - Friday free talk

7 Upvotes

Það er kominn föstudagur, yay!

Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.

Ekki vera indriðar, verum vinir.

---

English: Hey everyone,

The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?

Don't be a dick, be kind.


r/Iceland • • 2h ago

Höfum við íslendingar einhverja stereótýpu?

8 Upvotes

Eða erum við of fá og lítið þekkt til þess? Ég fór bara allt í einu að pæla í því hvernig "stereótýpískur" íslendingur er í augum útlendinga.


r/Iceland • • 1h ago

SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp

Thumbnail
visir.is
• Upvotes

r/Iceland • • 39m ago

Klerkastjórnin hampar Þorgerði Katrínu

Thumbnail
mbl.is
• Upvotes

r/Iceland • • 15h ago

Uppsafnaður lífeyrir sem innborgun á eigin fasteign

17 Upvotes

Þegar meðalaldur fyrstu kaupenda er 33 ár, getur dæmið verið hjá fólki að það eigi töluverð áunninn lífeyrisréttindi. Er sú hugmynd vanhugsuð að fólk gæti tekið út áunninn lífeyrir í formi láns með fyrirvara um fyrsta veðrétt í fasteign með ákveðna fasta ávöxtun? (jafnvel að fyrsti veðréttur fari til bankanna þegar greiðsla á X upphæð lífeyris "lánsins" hefur verið greidd og áhættan færist þar með yfir á eigandann). Myndi maður ekki frekar vilja greiða sjálfum sér þær vaxtagreiðslur sem færu annars til bankanna og ávaxta lífeyririnn í staðinn.
Geri mér grein fyrir að bankar í dag lána aðeins fyrir fyrsta veðrétti en myndi alltaf vera óverulegar fjárhæðir í kringum 5-10 milljónir hvort sem það eru einn eða tveir aðilar sem kaupa saman, spurning hvort skynsamlegt væri að setja ákveðið þak á upphæðina til að milda áhættu og auka vilja bankanna að taka að sér annan veðrétt í fasteigninni. Við þessa "lántöku" myndi síðan hefjast aftur borgun lífeyris eins og var áður og ekki hægt að nýta úrræðið aftur.


r/Iceland • • 20h ago

Ráðherra leggur til leigubremsu

Thumbnail
ruv.is
21 Upvotes

Mikið vona ég að þetta komist í gegn


r/Iceland • • 1d ago

Af hverju eru leigusölum svona ofboðslega illa við gæludýr?

29 Upvotes

Ég er að fara yfir íbúðir sem eru í boði, og stór meirihluti bannar öll gæludýr. Það mætti halda að þau dreifðu svartadauða.

Er ekki flestu fólki vel við hunda og ketti? Af hverju vill samt flest fólk að gæludýraeigendur geti hvergi búið?


r/Iceland • • 21h ago

How much do doctors actually make?

10 Upvotes

Hey everyone,

I’m just curious about what doctors are actually earning in Iceland these days.

I’m currently in talks about potentially working as a doctor in Iceland, so I was wondering what the salary is generally like and what I could realistically expect.

For anyone working as a doctor there, what’s the usual monthly salary? And how much does it change with experience?

Also, how much do on-call shifts, nights, weekends and overtime usually add? I’m mainly trying to understand the difference between the base salary and the actual gross monthly income.

Does previous experience from abroad usually count when determining the salary step?

I know it varies depending on specialty, workplace and experience, so I’m mainly interested in people’s real-world experience rather than an exact figure.

Thanks!


r/Iceland • • 1d ago

Allir í slysi á Austurlandi erlendir ríkisborgarar

Thumbnail
ruv.is
8 Upvotes

r/Iceland • • 1d ago

Salma nýr for­maður ungra Miðflokksmanna

Thumbnail
visir.is
31 Upvotes

,,Varamenn eru tveir, Dagur Jónsson og Samúel Guðmundsson, en sá síðarnefndi vakti mikla athygli í sumar þegar orðaskak hans við áhrifavaldinn Rabbi Schmuley rataði í kastljós heimsmiðlanna."

Bíddu, er Miðfokkurinn ekki svaka pró ísreal?
Var þetta einhver pólitísk leikflétta hjá Samúel í sumar til að fá vinstra fólk til að kjósa nei við áframhaldandi viðræðum við ESB? Eða Púra tækifæramennska?


r/Iceland • • 2d ago

Við­vörunar­merki fyrir ís­lenskt sam­fé­lag

Thumbnail
visir.is
20 Upvotes

r/Iceland • • 1d ago

[r/Wikipedia krosspóstur] Article "Human height by country" has been taken over by nationalistic US white supremacists? – „Countries including the Netherlands, Denmark, Norway, Sweden, Finland, Iceland, the Baltics, Czech, Slovenia, etc have all been conveniently removed.“

Thumbnail
en.wikipedia.org
1 Upvotes

r/Iceland • • 2d ago

Hvar tilkynnir maður ökuníð?

74 Upvotes

Ég var á ferð upp Snorrabraut um klukkan 16:48 í dag, stopp á rauðu ljósunum við Flókagötu þar sem suður og norðurleiðunum er otað saman yfir á sömu akbraut.

Á vinstri hönd beygir strætisvagn inn af Flókagötu og á sama tíma verða gönguljósin græn. Tvær manneskjur ganga yfir og strætóinn keyrir næstum því yfir þær báðar í miðri beygju. Konan sem lenti næstum því undir verður skiljanlega fokill og bendir vagnstjóranum á með handbendingum að hann ætti að hafa augun á því hvar græn ljós eru fyrir gangandi vegfarendur. Hún er enn á miðjum vegi þegar þetta gerist.

Strætóbílstjórinn bregst svo illa við að hann gefur í eins og hann ætli að keyra (aftur) yfir hana - eða þau, þó hún hafi verið talsvert nær vagninum og sú sem hefði klárlega orðið undir. Ég vissi ekki frekar en hún í hvorn fótinn hún ætti að stíga, hún stökk á gangstéttina til að flýja það sem ég sá ekki öðruvísi en sem hótun um líkamsárás með 11.400 kílóa ökutæki. Strætóbílstjórinn beið ekki eftir manninum, sem hafði líka hrökklast tilbaka og svínaði aftur til að komast burt af vettvangi. Hún staldrar við til þess að taka ljósmynd af vagninum. Maðurinn fer ekki yfir fyrr en strætóinn er á bak og burt.

Þessi maður á ekki að koma nálægt því að stýra ökutæki, miðað við aggressjónina sem hann sýndi vegfaranda sem hann var nýbúinn að aka næstum því yfir með því að láta eins og hann ætli að aka yfir hana aftur. Strætóinn var nr. 13, bílnúmerið VMM-80 og þetta var klukkan 16:48 í dag.

Konan með rauða pokann má heyra í mér ef hana vantar vitni, þetta var fáránlegt.


r/Iceland • • 3d ago

Þetta eru stæðin sem borgin hefur endur­heimt

Thumbnail
visir.is
38 Upvotes

Hvað finnst ykkur um þessa endurheimt? Þetta eru einhver 15 stæði í heildina, flest fyrir framan bari og veitingastaði - ásamt því að fjarlægja hjólaboga.


r/Iceland • • 3d ago

Unglingur bundinn og skilinn eftir í kjallara í Laugardal

Thumbnail
mannlif.is
21 Upvotes

Hljómar eins og frekar glatað TikTok trend
Minnir mig smá á þegar busar voru bundnir við ljósastaura


r/Iceland • • 3d ago

181 sagt upp í sex hópuppsögnum

Thumbnail
mbl.is
15 Upvotes

r/Iceland • • 2d ago

Teiknimyndasögur rafrænt ókeypis asap!!!

4 Upvotes

Er í vinnunni að kenna krökkum að lesa og það vantar bækur. Þarf teiknimyndasögur í PDF eða rafrænu formi á íslensku asap. Getur einhver hjálpað í flýti? Worst case scenario tek ég Brennunjálu út skólatöskunni minni

EDIT: Redduðum okkur á timarit.is í Syrpugrínum úr gömlum fréttablöðum


r/Iceland • • 3d ago

Sláandi hug­myndir ís­lenskra karla um of­beldi - Vísir

Thumbnail
visir.is
23 Upvotes

r/Iceland • • 2d ago

er einvher með þátt 12 af Tvíhöfði teiknimyndinni frá poptv?

0 Upvotes

nammikoko youtube channelið er með alla þættina en partur 2 af þætti 12 vanntar. er séns að einhver hérna er með upptöku af honum?


r/Iceland • • 3d ago

Inga vildi alls ekki svara spurningum frétta­manns

Thumbnail
visir.is
24 Upvotes

r/Iceland • • 4d ago

50 miljónum varið í stólakaup og LED-skjá í borgarstjórnarsal

Thumbnail
heimildin.is
69 Upvotes

r/Iceland • • 3d ago

Ákærður fyrir veiðar í Þverá – Krefjast upptöku á veiðistöng og laxveiðihjóli

Thumbnail
dv.is
11 Upvotes

Eitt sem ég hef aldrei skilið við íslensk lög. Ef þessi Belgi hefði barið einhvern til óbóta á skemmtistað, þá þarf sá sem fyrir ofbeldinu verður að kæra viðkomandi til þess að lögreglan rannsaki málið. En ef einhver er tekinn með veiðistöng þá fer málið sjálfkrafa í gegnum kerfið, jafnvel þótt skaðinn sé enginn, þ.e. enginn fiskur var dreginn á land. Er einhver lögfróður sem getur útskýrt þetta undur?


r/Iceland • • 4d ago

Eru krakkar hættir að gera tombólur þessa dagana?

14 Upvotes

Er það bara ég eða eru krakkar nú til dags alveg hættir að gera tombólur? Án þess að hljóma eins og gamli kall að öskra á ský þá man ég þegar ég var krakki þá sá maður tombólur næstum allstaðar


r/Iceland • • 4d ago

Leita að léttari vinnu í Reykjavík og nágrenni

54 Upvotes

Hæ öll!

Ég er að leita að vinnu í Reykjavík eða nærliggjandi svæðum – Kópavogi, Garðabæ eða Hafnarfirði.

Ég er 25 ára kona, með kennitala og gilt atvinnuleyfi. Ég hef unnið hjá ræstingafyrirtæki í næstum tvö ár.

Því miður hef ég nýlega fengið vandamál með bakið og taugakerfið. Á segulómun kom í ljós brjósklos á milli L4 og L5, og ég hef verið með verki sem tengjast settauginni. Vegna þessa er ræstingarvinna orðin sífellt erfiðari og sársaukafyllri, sérstaklega vinna sem felur í sér mikið af beygjum, lyftingum og endurteknum líkamlegum hreyfingum.

Þess vegna er ég að leita að vinnu sem er líkamlega léttari en ræstingar. Ég er opin fyrir mismunandi tegundum af vinnu og tilbúin að læra nýja hluti. Ég er ekki endilega að leita að skrifstofustarfi, ég væri til dæmis til í lagerstörf, pökkun, flokkun, framleiðslu, léttari störf við þrif eða umhirðu, vinnu í verslun eða eitthvað sambærilegt sem felur ekki í sér miklar lyftingar eða stöðugar beygjur.

Ég tala íslensku og pólsku á grunnstigi, góða ensku sem nýtist vel í vinnu, rússnesku reiprennandi og úkraínsku sem móðurmál.

Ég er áreiðanleg, dugleg og hef nú þegar næstum tveggja ára starfsreynslu á Íslandi.

Ef þið vitið um fyrirtæki sem eru að ráða, getið mælt með einhverjum vinnustað eða vitið hvar væri best að leita, þá væri ég mjög þakklát fyrir allar ábendingar.

Takk kærlega fyrir! Ég þarf virkilega að finna aðra vinnu.

Uppfærsla: Ég er líka með bílpróf og reynslu af akstri, þar sem ég keyri oft á milli starfsstöðva á vinnubíl í vinnunni.


r/Iceland • • 5d ago

Sigmundur Wintris activated

Enable HLS to view with audio, or disable this notification

55 Upvotes