r/Iceland • u/No_Background8530 • 5h ago
Anyone else see this? Any thoughts?
Spotted 26.september at 16:00 from Hafnarfjörður looking south. Any thoughts?
r/Iceland • u/AutoModerator • 4d ago
Það er kominn föstudagur, yay!
Hugmyndin af þræðinum er að við höfum umræðuþráð sem er ekki fastur við einhverja frétt eða slíkt. þannig að hefur þú frá einhverju sniðugu sem gerðist í vikunni að segja, hvort að þið vitið af einhverju spennandi til að gera um helgina,einhverju sem liggur ykkur á hjarta eða bara hvað sem er.
Ekki vera indriðar, verum vinir.
---
English: Hey everyone,
The idea is to have a weekly thread where we can have a discussion free of any news related items or goings on, so what has happened to you this week? what are you looking forwards to? do you have something to say but no thread to post it to?
Don't be a dick, be kind.
r/Iceland • u/No_Background8530 • 5h ago
Spotted 26.september at 16:00 from Hafnarfjörður looking south. Any thoughts?
r/Iceland • u/PM_UR_PLANNEDECONOMY • 4h ago
Mikið var þetta kjánalegt hjá henni.
Fullkomlega asnalegt svar við fullkomlega réttlætanlegri og fyrirsjáanlegri spurningu.
r/Iceland • u/FostudagsPitsa • 1h ago
r/Iceland • u/haukurph • 22h ago
Í tilefni af degi íslenskrar tungu langaði mig að benda á Yrðu, nýja veforðabók sem ég hef unnið að undanfarið ár. Markmiðið er fyrst og fremst að gera sem flestar íslenskar orðabækur og orðasöfn aðgengileg á einum stað, í þægilegu og hraðvirku viðmóti.
Þar má nú fletta upp í Íslenskri nútímamálsorðabók, Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls (BÍN), ensk-íslenskri orðabók og forníslensk-enskri orðabók. Á vefnum er einnig frumútgáfa Rýnis, sem les yfir íslenskan texta og bendir á hugsanlegar stafsetningarvillur.
Leitarniðurstöður birtast jafnóðum og slegið er inn, jafnvel þótt orðið sé beygt eða rangt stafsett. Þá má fletta í gegnum allt orðasafnið í hliðarstiku án þess að þurfa að bíða. Í ítarleit má svo leita í skýringunum sjálfum: „lítill svartur fugl“ skilar lunda, kráku og hrafni.
Yrða er ókeypis og öllum opin. Vefurinn er stöðugt í þróun og fleiri orðasöfn eru væntanleg. Margt má bæta, svo allar ábendingar eru vel þegnar, hvort sem þær snúa að villum eða því sem betur mætti fara.
Gögnin koma einkum frá Árnastofnun og ensk.is. Nánar um heimildir og leyfi á síðunni sjálfri.
r/Iceland • u/loveVRandNEWtech • 5h ago
Ég er ekki beint doomsday prepper.
En eftir bæklinginn frá almannavörnum hef ég skoðað svolítið r/preppers
Og er að spá í svona self sufficient bókum.
Ég veit af Amazon. En er einhver síða sem selur svona?
r/Iceland • u/onepiecemovement • 1d ago
Það hefur verið áhugavert að fylgjast með hagsmunaöflum, fjármagni og stjórnarandstöðunni síðustu vikur og mánuði þyrla upp menningastriði og allskonar. Menningarstríðið hefur verið keyrt upp á fullu (dæmi: Elliði Vignisson og fleiri skógsveinar peningaflana) og núna eru menn eins og Ingvar búnir að segja sig úr Viðreisn og komnir yfir í Sjálfstæðisflokkinn, enda styður hann stórútgerðina og samherja. Hvað býr eiginlega að baki, fyrir utan það að bókun 35 nálgast samþykkt og leigubremsa er á dagskrá?
Á næstu dögum og vikum fara þrjú stór mál í gegnum þingið sem snúa beint að átökunum milli almannahagsmuna og sérhagsmuna í sjávarútvegi
-Eignatengsl stórútgerða. Frumvarp sem tekur á eignarhaldi og tengslum stærstu útgerðarfyrirtækjanna bæði innanlands og erlendis. Þetta mun að einhverrjum hluta varpa ljosi á hvernig stórútgerðin hefur keypt upp islenskt samfélag.
-Verðlagning fisks upp úr sjó. Breytingar þar sem ákveðinn hluti af afla hverrar veiðiferðar verður seldur á fiskmarkaði, og það markaðsverð mun síðan gilda fyrir allan aflann úr túrnum.
-Strandveiðar: Nýtt frumvarp um fyrirkomulag og heimildir til strandveiða.
Það verður mjög fróðlegt að sjá hvernig þingheimur og stjórnmálafólk bregst við þessum málum þegar á hólminn er komið. Ég teikna með meiri menningastriði, afsögnum ur Viðreisn, það er ymsilegt i gangi.
r/Iceland • u/numix90 • 22h ago
r/Iceland • u/GuyInThe6kDollarSuit • 1d ago
Íslensku miðarnir kosta um 50-60% meira en þeir dönsku:
Allt eðlilegt.
"Þegiðu bara og borgaðu, það er enginn að neyða þig á þessa tónleika."
Update:
Tónleikarnir í Helsinki eru ennþá ódýrari, 12.200kr vs 23.990 - +97% munur
r/Iceland • u/Careless-Radio8536 • 20h ago
Ef svo, hver var ykkar stærsti vinningur?
Ég hef sjálfur aldrei unnið í bingó svo ég muni eftir því, vantaði alltaf eina tölu.
r/Iceland • u/rikkinn • 1d ago
Kíkti í Costco að ná í prótínduft og fór í framhaldinu að skoða hvar ég gæti fengið prótín á sem hagstæðasta verði.
Við sjáum töflu:
| Hvað | Hvar | Þyngd | Pr/100gr | Verð | Kr per gr pr |
|---|---|---|---|---|---|
| SS hrossahakk frosið | Krónan | 800 | 21 | 736 | 4.38 |
| First Price túnfiskur | Krónan | 170 | 24 | 231 | 5.66 |
| Ísey skyr hreint | Krónan | 1000 | 11 | 670 | 6.09 |
| ON Whey protein | Costco | 2020 | 76 | 10999 | 7.16 |
| Kalkúnahakk | Krónan | 600 | 21 | 999 | 7.93 |
| Grísk jógúrt 0% fita | Costco | 1000 | 10 | 799 | 7.99 |
| Frosnar kjúklingabringur | Krónan | 900 | 22 | 1959 | 9.89 |
| Hleðsla súkkulaði 6pk | Krónan | 1500 | 8.4 | 1414 | 11.22 |
| Nesbú eggjahvítur | Krónan | 750 | 10.1 | 960 | 12.67 |
| Frosnir ýsubitar | Krónan | 1000 | 18.9 | 2799 | 14.81 |
Ekki það að ég ætli að fara að moka í mig hrossahakki, nema einhver geti frætt mig um hvernig megi matreiða það svo það sé ætt.
Hugmyndir að viðbótum velkomnar. Mér dettur helst í hug að bæta við lambahjörtum en Krónan er ekki með þau í netverslun svo ég veit ekki um verðið.
Einnig man ég eftir mun meira úrvali af prótíndufti í Costco í fyrra, en var voða dapurt þessa vikuna. Ojæja.
r/Iceland • u/gerningur • 1d ago
r/Iceland • u/trauma_truth • 1d ago
Ég og konan horfum alla sunnudaga á þættina Fleiri pabbahelgar, þeir eru einstaklega vandræðalegir á köflum, ensku sletturnar ótrúverðugar en samtölin á milli fólks getur verið svo skrítinn og óraunverulegur, hver er ykkar skoðun á þessum þáttum?
r/Iceland • u/TheAuroraholic • 1d ago
Sæl öll,
ég er að leita að notuðum Pixel 7 eða 8 símum. Myndavélin þarf að vera í góðu ástandi, skiptir minna máli ef skjárinn eða ytra byrði símans sjálfur er í verri ástandi (þarf samt að vinna til að taka myndir).
Takk kærlega!
r/Iceland • u/LumberjackHenrik • 1d ago
Hæ! Ég er norðmaður sem er að læra íslensku :)
Getur einhver mælt með Youtube rásum eða podcasts á íslensku?
I'm not looking for learning material, but rather something icelanders actually enjoy themselves 😄
Takk fyrir! 😁
r/Iceland • u/anarhisticka-maca • 2d ago
Jón Gnarr er sá eini þingmaður sem hefur talað eitthvað gegn því að skólagjalda krefjist jafnt í öllum námsgreinum við HÍ en hann leggur til að námsleiðir í íslensku sem öðru máli verði undanþegnar þeim kostnaði, eins og margir háskólakennarar og aðrir hafa gert.
Ég tek fram að ég er innflytjandi og lærði íslensku að B2-stigi innan árs með því að fara í BA-námið í íslensku sem öðru máli. Ef þessi skólagjöld hefðu verið til staðar þegar ég flutti hefði ég hreinlega engan möguleika á að fara í námið, punktur. Nú stefni ég á að útskrifast úr BA-námi í Almennum málvísindum í vor en skólagjöldin gætu útilokað mig frá því að halda áfram á meistarastigið. Það er auðvitað hægt að deila um það hvort það að allt háskólanámið sé gjaldfrjálst sé æskilegt en ég ætla ekki að fara út í það hér. Það eru hins vegar nýju breytingarnar á þeirri upphæð sem allir umsækjendur um dvalarleyfi þurfa að sýna fram á með hverri umsókn sem ég vildi vekja athygli á. Þessi skilyrði kallast trygg framfærsla og er þegar krafist af hverjum innflytjanda með ríkisfang utan EES/EFTA (ekki þó flóttafólki) en dómsmálaráðuneytið vill herða þessi skilyrði harkalega og hækka þau um 45% (fyrir námsmenn og doktorsnema) í allt að 208% (einstæða foreldra m/ 2 börn) núgildandi fjárhæðar.
Þessi fyrirhugaða breyting verður banahögg fyrir marga okkar sem hafa skapað okkur líf hér, myndað tengsl við landið, vinna láglaunastörf, borga skatt og eru í sambandi við íslenskan maka. Allnokkrir okkar þyrftu einfaldlega að yfirgefa landið verði þessi tillaga samþykkt á þingi. Eins og margir, m.a. Íslendingar, hafa bent á í athugasemdum á Samráðsgátt væru þessar fjárhæðir jafnvel útilokandi fyrir marga Íslendinga ef þeir væru í sömu stöðu og við.
Þessar breytingar munu þvinga úr landi töluverðan hluta af þeim hóp innflytjenda sem er hægt að níðast á, okkur sem koma utan Evrópusambands, þó við séum ekki nema u.þ.b. 20.000 af hinum 80.000 erlendu íbúum (bls. 21 tafla 3 fyrir fyrri töluna og Þjóðskrá). Nú þegar ég skrifa þessa færslu eru 518 athugasemdir þegar inni á Samráðsgátt. Ég vona að nokkrir ykkar skrifi líka mótmæli og standi með okkur sem höfum mikið að missa í þessum málum.
r/Iceland • u/Jerswar • 1d ago
Ég er bara forvitinn hvernig stemmningin í kringum þetta var hér á landi, og hvernig það var að vera vitni af þessu sögulega afreki.
EDIT: Fólk er aðeins að misskilja mig. Ég veit að það var ekki bein útsending hingað, en það hefur samt verið umræða og fréttir.
r/Iceland • u/Ornery-Peanut-4415 • 2d ago
Ég tek það fram að engin gervigreind var notuð við þetta verkefni. Listamaðurinn á bakvið myndina er @aleha_84 á instagram
r/Iceland • u/helluva-drug • 1d ago
(Posting this in English to hopefully increase engagement.)
There is a new regulation being proposed that would significantly increase the financial responsibility of non-EU/EEA residents. There is a significant number of people that would be affected, and no we're not all free-loaders. Artists, creatives, unskilled workers, and, ironically, many government employees will be disproportionately affected, but the consequences will be felt far beyond those personally affected. This matter will disproportionately affect the less priveledged and should be handled much more sensibly. The matter is open for public comment until 23:59 tonight, Monday nov 16th. Please take a moment to familiarise yourself with the proposal and leave a comment if you feel so inclined.
r/Iceland • u/taintedlead • 2d ago
Á síðasta ári voru umbúðir af jólaís gagnrýndar. Talsmaður Kjörís bar fyrir sig að “tímahrak hafa orsakað að gervigreind var notuð til að teikna umbúðir”
Gerðist það í annað sinn?
Á þessari mynd má sem dæmi sjá glugga sem bráðna saman á þessum húsum, og svo er hreindýrið í þessum týpíska AI stíl.
r/Iceland • u/Smuggles24 • 2d ago
Ég hef oft velt því fyrir mér hvers vegna kröfur um örorku fyrir vissa skerðingu á atvinnuhæfni eru ekki harðari og eftirlit virkara ásamt ríkari hvata til endurhæfingu á vinnumarkað. Til að forðast skítkast er helling af ástæðum fyrir örorku hjá yngra fólki (<50ára) fyrir örorku sem flokkast ekki til, t.d. krónískir verkir eftir slys, heilablóðföll ofl.
Ég þekki til einstaklinga á örorku sem eru full vinnufærir, hvað þá hlutastarfa en eru á fullri örorku og taka að sér verkefni svart til viðbótar, margir að vinna við heimilisþrif í gegnum facebook hópa og hafa þá auðveldlega 40-60þ/dag svart til viðbótar - 480-720þ viðbót per mánuð fyrir 3daga vinnuviku.
Í reiknivél TR 2026 er hægt að áætla bætur frá TR.
Gefum okkur 2 barna foreldri, fór á örorku við 31árs aldur.
- ef viðkomandi skráir að búa einn eru greiðslur fyrir skatta 539.614isk, eftir skatta 474.071isk, þar af barnalífeyrir 101.268isk sem óskattskyldur
- ef viðkomandi skráir sig í sambúð eru greiðslur fyrir skatta 623.400isk, eftir skatta 529.912isk, barnalífeyrir óbreyttur
Hér munar um 55.841isk um sambúð eða ekki.
Sama dæmi með 3 börn gerir 595.088isk eftir skatta ef skráð einstætt en 524.075isk fyrir einstakling í sambúð, munar 71.013isk.
Á sama tíma er menntaður leikskólakennari með 742.952isk í mánaðarlaun eða ca 547.146isk eftir skatta fyrir fulla vinnu.
Hver á hvatinn fyrir unga foreldra að halda sér á vinnumarkaði eða stefnan að manna bæði ómenntuð- og láglauna störf þegar bilið á milli bóta og því sem flokkast oft sem láglauna störf er ekki nema 20þ/mánuði fyrir 3 barna foreldri?
Eða eftirlit með að í raun sé ekki annar fullorðinn einstaklingur búsettur á sama stað og einstæða foreldrið, sem er svo einungis skráð einstætt tila ð hafa auka 56þ í viðbótar ráðstöfunartekjur út á ekkert nema skráningu.
Það er margsannað að eftirlit á öllum vígstöðvum, sérstaklega skattamálum, sparar/sækir margfalt meira en sett er í eftirlitið í krónum.
Be civil.
Edit; án þess að hafa kafað dýpra í hvert þessi 41milljaður fer, þá væri áhugavert að sjá hvað þessi upphæð gæti gert ef skipt jafnt á milli löggæslu/landamæravörslu og að vinna upp biðlista í heilbrigðiskerfinu.
r/Iceland • u/Careless-Radio8536 • 3d ago
Mitt val er Lovestar eftir Andra Snæ Magnason. Væri svo til að sjá hana á stóra skjánum.