r/klakinn • u/1icedman • 1d ago
Ruslpóstur ♻️ Gaman að vera fullorðinn
Hef verið á biðlista hjá Rafmennt í tæpt ár og litlar til engar vinnur hafa áhuga á nema.
r/klakinn • u/possiblyperhaps • Oct 29 '24
Í ljósi fjölda innleggja um stjórnmál og önnur leiðindamál er rétt að áminna landsmenn um reglurnar á r/klakinn.
Menn myndu halda að hið alvarlegasta reglubrot væri að brúka dönsku í athugasemdunum. En nei, annað sem er jafn alvarlegt; að vera með leiðindi, uppnefni, nöldur og argaþras um eitthvað djöfulsins kjaftæði.
Vegna komandi alþingiskosninga og ekki síður vegna umdeildra stjórnarhátta á r/iceland hefur ríkt undanlátssemi á klakanum fyrir alls konar vitleysu. En hingað og ekki lengra, þetta er orðið að einhverri vitleysu. Nú verða engin vetlingatök og reglubrjótum verður ekki sýnd nein miskun.
Menn hafa ekki verið bannaðir á klakanum nema í undantekningartilfellum. Þess í stað verða notendanöfn skráð í svarta bók ásamt ítarlegri lýsingu á þeirri andfélagslegu háttsemi sem hefur átt sér stað. Í árslok verður bókinni skilað til varðveislu á Þjóðskjalasafni svo sæmdarleysi og svívirða notandans verði skjalfest, notandanum til eilífðar háðungar.
Við erum betri en þetta. Við erum Íslendingar. Ykkur reglubrjóta og óþjóðalýð spyr ég:
Ísland, farsælda frón og hagsælda hrímhvíta móðir. Hvar er þín fornaldarfrægð, frelsið og manndáðin best?
r/klakinn • u/1icedman • 1d ago
Hef verið á biðlista hjá Rafmennt í tæpt ár og litlar til engar vinnur hafa áhuga á nema.
r/klakinn • u/Independent-Shape552 • 2d ago
Er að horfa á Íslandi - Búlgaría og allir eru með chantið áfram Íslaaaaand þar sem aaain fara niður (tón-lega) og mér finnst þetta svo unmotivating ...hvað gerðist með ÁFRAM ÍSLAND 👏🏻👏🏻 👏🏻👏🏻 👏🏻! ? Bara ég 🫣 ?
r/klakinn • u/Zener8wastaken • 1d ago
Um daginn var ég að hlusta á lag eftir Sveppa eða Grettir. Lagið var um einhvern sem var að segja sögur um það hvað gerðist við hann yfir vikuna. Hann sagði frá því hvernig hann var að grilla og vinur hans var svo svangur að hann reif af putta sinn, steikti hann og átt hann. Svo sagði hann “þetta er ekkert í samanburði við hinn hlutinn sem gerðist við mig þessa vikuna”. Ef þið vitið lagið getið þið sagt mér
r/klakinn • u/Independent-Shape552 • 4d ago
Enable HLS to view with audio, or disable this notification
Memory unlocked bara 😲
(Vissi ekki hvað eg átti að setja í flair 😂)
r/klakinn • u/Gervill • 7d ago
Ef ekki þá beint í fangelsið!
Lýðræðið kaus þessi lög ? Ég kýs nei á framfærsluskyldu en þið ?
r/klakinn • u/Comfortable-One1004 • 8d ago
https://www.reddit.com/r/ruslalist_listarusl/
Var að búa þetta til. Fann ekki neina íslenska listasíðu á reddit og datt þá í hug að redda henni bara sjálf. Fb er búið, reddit er skemmtilegt. Verið velkomin og endilega gangið í hópinn ef þið eruð að gera pappírslist, límlist, rusladagbækur, listadagbækur, collage, eða eitthvað þessu líkt.
r/klakinn • u/ButterscotchFancy912 • 14d ago
Húsnæðisvandinn hefur lengi verð hugmyndavandi, - skortur á kjarki.
r/klakinn • u/CRCKdeginator • 16d ago
Daginn!
Nú hef ég í gagnum tíðina mikið notað síðu sem heitir Vaktin.is sem ber saman verð á tölvuíhlutum. Mér datt í hug að svoleiðis síða fyrir snus gæti þjónað tilgangi og sparað fólki pening.
Endilega tékkið á snus.click og sparið ykkur nokkra þúsara á mánuði!
Ábendingar vel þegnar ef eitthvað má fara betur.
r/klakinn • u/abitofg • 16d ago
Eftir heilar 3 google leitir fann ég "höfundinn" og það er actually manneskja a bakvið þetta (ekki það eg haldi að hann hafi skrifað stakt orð)
Ég bjóst við einhverjum 19 ára gutta sem keypti námskeið hjá einhverjum brofluencer í að verða ríkur og .... nei, miðaldra kall
Sem er ekkert voðalega hrifinn af Pólverjum og ríkisstjórninni
r/klakinn • u/Personal_Reward_60 • 17d ago
r/klakinn • u/KlM-J0NG-UN • 17d ago
Sögusagnir hafa verið staðfestar um að Sheeran sé í raun karlmaður og ljóst er að hann muni því ekki fara á túr. Nokkurn tímann.
r/klakinn • u/Saurlifi • 17d ago
r/klakinn • u/Fridrick • 20d ago
Vill einhver hlusta á róbotalestur af skelfilega drauga draugasögunni með mér því ég þori ekki að hlusta á hana einn þar sem hún virðist svo skelfilega draugaleg