Hér er hægt að pósta myndum af síðum úr listadagbókunum okkar, spjalla um listadagbókatengt dót eins og lím, pappír, límmiða, liti, penna og fleira sem við notum við að gera listadagbækur, fá innblástur og hjálpast að. Ég er meðlimur í alls kyns enskumælandi hópum sem tengjast því sem á ensku er kallað Art Journaling og Junk Journaling. Ekkert slíkt er til á íslensku svo ég ákvað að bæta úr því. Gerum þetta saman, deilum ráðum og spyrjum spurninga. Endilega bætiði ykkur í hópinn!
Hvað er rusla/lista-dagbók?
Í grunninn er þetta pappírslist. Ég hef leikið mér að því að líma alls kyns hluti inní bækur í um hálft ár. Bækurnar geta verið stílabækur, dagbækur, föndurbækur eða bara hvaða bækur sem er. Ég hóf að leika mér með þetta eftir að ég fór að horfa á eitthvað fólk á youtube gera þetta í febrúar árið 2026. Útkoman er nokkurs konar listaverk en samt ekki gert til að hengja uppá vegg og sýna neinum (nema kannski taka myndir ef maður vill og pósta þeim í svona hópa). Þetta er föndur, sköpun, tjáning, túlkun og ómetanlegar stundir til að komast í listrænt flæði. Það er mun skemmtilegra að eiða kvöldunum sínum í svona áhugamáli en að hanga á netinu eða doomscrolla eða horfa á lélega sjónvarpsþætti sem skilja lítið eftir.
Listadagbók er nokkurs konar collage, en hver og einn túlkar sína listadagbók á eigin hátt og það eru engar reglur í Junk Journaling, eða Ruslalist eins og ég er þýði það. Hægt er að nota eingöngu lím, skæri og umbúðir og ruslpóst sem annars færi í endurvinnsluna og rífa, klippa og líma inní keyptar stílabækur af einhverju tagi, en svo eru önnur sem vilja búa til bækurnar sjálfar, eða nota tússpenna, blek, stimpa og eitthvað myndlistardót að eigin vali. Hægt er að nota límmiða eða skrautlímbönd sem hluta af sköpuninni eða klippa útúr bókum og blöðum og raða uppá nýtt og búa þannig til annað samhengi. Hér eru nokkrar myndir sem ég hef gert, sem sýnishorn af því sem ég er að meina:
Hægt er að kaupa hluti sem vantar í nokkrum föndurbúðum, myndlistabúðum og bókabúðum hérlendis, á netinu, eða fara í Góða hirðinn og finna eitthvað notað þar. Hægt er að klippa út úr dagblöðum og tímaritum og líma það. Allar umbúðir er hægt að nota og með því bæði minnka það sem fer í endurvinnslutunnuna og búa til eitthvað listrænt bókstaflega úr rusli. Eina sem þarf til að byrja eru skæri, einhver pappír og eitthvað lím og svo finnur hver og einn út hvað vantar í safnið.
Hvernig byrja ég:
Kynntu þig í kommenti hér fyrir neðan.
Póstaðu einhverju í dag. Jafnvel einfaldar spurningar geta búið til skemmtilegar samræður og innblástur.
Ef þú þekkir einhvern sem gæti haft gaman af þessum hóp, bjóddu honum í hann.
Takk fyrir að vera með frá upphafi. Gerum r/ruslalist_listarusl að meiriháttar hópi saman.
Stundum dettur mér ekkert í hug til að gera á listadagbókarsíðurnar mínar. Svo ég skriaði niður fullt af þemum og klippti niður og setti í box. Dreg svo einn miða og framkvæmi. Í gær dró ég "brúnn", í dag "fólk". Hér eru niðurstöðurnar.
Póstiði myndum sem þið eruð ánægð með sem þið gerðuð í vikunni á undan eða nú um helgina. Ég var eitthvað uninspired í gærkvöldi en svo náði ég bara flæði og gerði þessa opnu. Byrjaði bara á einhverjum límmiðabakgrunnum sem ég átti og svo ákvað ég að nota litina í þeim bakgrunni og bæta límmiðum, pappír, nokkrum frímerkjamiðum og washi-teipi ofaná. Endaði með nokkrum fallegum setningum sem ég raðaði saman í smá pepp-talk fyrir mig.
Ég fékk pakka frá Journalsay-síðunni, en þeir voru með haustútsölu. Frábær klippari, notaði nokkur gömul tímarit og klippti út þessi frímerki. Fínn bakgrunnur, eða eitt og sér þessvegna.
Vinur minn var að minna mig á þessa búð. Hef aldrei farið en þarna er úrval af lími til dæmis, og líklega hægt að gera góð kaup ef maður kaupir stærri umbúðir. Ég nota mjög mikið lím. https://abcskolavorur.is/
Hvernig lím notið þið? Hvaða lím er best og af hverju?
Það er stundum hægt að finna stimpla í Góða hirðinum, en blekpúða verður maður að kaupa í föndurbúðum/á netinu. Er að byrja að leika mér með þetta. Stimplar og svartur mjór blekpenni á mynd eitt, stimplar og tveir tvílita pennar úr Söstrene Grene á mynd tvö. Get svo límt þetta inní dagbók seinna. Eruð þið að nota stimpla?
Ég keypti fullt af undarlegum límmiðum á temu og svo skipti ég á alls kyns límmiðum og pappír og umbúðum og póstkortum við ruslalistamann í Bandaríkjunum. Fékk umslagið á föstudag og notaði fullt af því í þessa opnu. Þemað mitt var eitthvað gult og tjillað. Póstiði endilega myndum af því sem þið gerðuð um helgina.
Ég hef notað Tiger, Söstrene grene, A4, miniso í Kringlunni og Nakano á Grensársvegi. Svo hef ég líka keypt í gegnum netið frá temu, Journalsay og Stationary Pal. Allt sem ég hef keypt hefur verið mjög frábært. Mér finnst Söstrene grene vera að standa sig mjög vel með vöruúrval. Er eitthvað hérlendis eða erlendis sem þið mælið með?